|
13.02.2009 23:36:04 / haffah
Fésbókin er sko aldeilis búin að stela senunni frá blogginu. Ég hef verið í smá bloggpásu en er ekki alveg hætt eins og ég hef oft sagt áður. Þetta er búið að vera frábært ár enn sem komið er, snjór í Bláfjöllunum síðan um miðjan janúar og við hérna á Hringbrautinni höfum nýtt okkur það. Siggi hefur aðallega verið duglegur, en við höfum tvisvar sinnum farið með Víking upp í fjall á snjósleða þar sem við nenntum ekki að bíða eftir leigu á skíðum. En núna um daginn fengum við gefins skíði fyrir hann, þurfum bara að redda honum skóm þá er drengurinn tilbúinn í skíðabrekkurnar. Ég er orðin nokkuð sleip á snjóbrettinu enda tími til komin, það eru heil 4 ár síðan ég prófaði svona fyrst. Ég get nú ekki sagt að ég sé neinn snillingur, en ég kemst niður brekkuna á mínum varkára stíl án þess að detta á meðan "unga og óhrædda fólkið" þeysist fram úr mér. En ég er bara sátt við þetta. Mér finnst þetta allavega mjög gaman. Við erum allavega ekkert að fara á skíði um helgina. Erum öll 3 búin að vera heima með flensuna alla vikuna, ég og Víkingur erum að ná okkur en Siggi er enn með hita, þetta er nú meiri flensan og við Siggi vorum meira að segja búin að fá okkur flensusprautu í haust. Það er greinilega ekkert öruggt í þessum efnum. Svo verð ég grasekkja næstu vikurnar þar sem Siggi er að fara á mánudaginn til Venesúela að vinna. Ég trúi því að vísu ekki fyrr en það gerist hann er búin að vera á leiðinni síðan um miðjan jan en vinnan er alltaf að fresta honum. Ég lofa tíðari færslum. Knús í bili.
»
21.01.2009 21:57:57 / haffah
Ég átti fínan afmælisdag í dag. Núna á tímum fésbókarinnar er ekkert leyndarmál þegar maður á afmæli. Ég held að ég hafi aldrei fengið jafnmargar afmæliskveðjur ævinni. Ég taldi 54 kveðjur bara á fésbókinni og frá ótrúlegasta fólki, plús öll sms-in og símtölin. Gaman að þessu. Ég bauð 4 vinkonum heim í mexókóska kjúklingasúpu. Mjög kósí hjá okkur. Ég hef ekki haldið upp á afmælið í langan tíma, mig langaði svo rosalega að bjóða heim og ágætt að nota afmælið sem ástæðu. Svo í dag fór ég út í búð og keypti afmælisgjöf fyrir sjálfa mig. Í svona 4 ár er ég búin að vera veik fyrir háum stígvélum úr fiskroði frá hönnuði sem heitir María K. Magnúsdóttir. Þegar ég var í fæðingarorlofi þá gekk ég oft framhjá búðarglugganum á Skólavörðustíg þar sem hún var á þeim tíma með búð og lét mig dreyma. En þetta er frekar dýr vara og ég gat ekki leyft mér þetta á skertum fæðingarorlofslaunum. Svo sá ég þessi eldrauðu stígvél í búðinni hennar núna fyrir jól og það var ekki aftur snúið. Þau voru á útsölu núna þannig að það þýddi ekkert annað en að skella sér á þau. Og vá hvað ég er ánægð með að hafa dekrað svona við sjálfa mig. Ég segi nú bara kreppa hvað  Maður verður nú að líta vel út þótt það sé kreppa. Ég tók bara svona smá Nynne fíling á þetta (Nynne er uppáhaldsþátturinn minn þessa dagana, en hann fjallar um hina dönsku Nynne sem býr í Köben og er haldin ólæknandi neyslubjrálæði og það dugar ekkert annað fyrir hana en dýr merki). En ég átti þó allavega fyrir þessum stígvélum. Nynne tekur þetta doldið á yfirdrætti og kæruleysi.
»
13.01.2009 11:28:36 / haffah
Nú er komið nýtt ár, ný og spennandi verkefni og við hérna á Hringbrautinni horfum björtum augum á framtíðina. Það þýðir víst ekkert annað. Ég er byrjuð í skólanum eftir jólafrí og er núna búin að gera mér grein fyrir því hversu langt ég er í raun komin með þetta nám. Það styrkir mig í að taka þetta með trompi og gera þetta almennilega. Maður hefur oft verið að láta skólann sitja á hakanum af því að maður telur sig hafa nógan tíma í framtíðinni. En núna er ég búin að komast að því að það er ekki mikill tími eftir og því um að gera að skipuleggja sig og nýta tímann sem best. Það gengur þokkalega framan af og ég býst ennþá við að geta útskrifast vorið 2010. Það er líka nóg að gera í vinnunni og að reka heimilið og eftir 2 vikur fer Siggi til Venesuela að vinna og verður í 2-4 vikur. Þannig að þetta allt krefst skipulagnignar og að láta hlutina ganga upp. En þetta hefst allt og ég finn fyrir miklu minna stressi en fyrir ári síðan. Þá var ég líka m,jög alvarlega að hugsa um að hætta í skólanum en er mjög fegin að hafa haldið áfram. Jæja best að fara í tíma.
»
01.01.2009 08:20:02 / haffah
Ég óska öllum lesendum mínum nær og fjær gleðilegt nýtt ár og takk fyrir stuðninginn á undanförnum árum. Þá er mín mætt í vinnu kl. 8 að morgni nýársdags. Það var ansi skrautlegt að keyra hingað niður í Kópavoginn áðan. Maður mætti fullt af fólki á heimleið frá djamminu og ég sá einn gaur sem var á röltinu meðfram Kringlumýrarbrautinni sem var svo drukkinn að ég þurfti að sveigja töluvert þar sem ég var dauðhrædd um að hann myndi arka út á miðja götu. En svona eru nú áramótin, fólk fer seint út á lífið og seint heim. ÞAð var bara rólegt í minni fjölskydlu, við fórum í hið fasta nýársboð í Garðabænum hjá fjölskyldu Sigga. Það var mjög rólegt og fínt, Víkingur var alveg að missa sig yfir áhuga sínum á flugeldum. Við reyndum að fá hann til að sofa aðeins yfir daginn til að safna kröftum fyrir kvöldið, en það var ekki í myndinni hann var greinilega hræddur um að missa af einhverju. Svo var minn orðinn svo yfir sig þreyttur eftir miðnætti og steinsofnaði á leiðinni heim.
»
28.12.2008 09:04:11 / haffah
Þetta sagði sonur minn hálf kjörkrandi að kvöldi 26 des. Sá var sko ekki sáttur þegar hann fékk þá útskýringu að jólasveinarnir væru hættir að gefa í skóinn og á leiðinni heim til fjalla. Þetta fannst honum alveg glatað. Og það er ekki nema von að hann kvarti yfir að jólin séu að verða búin. Þá þarf maður allt í einu að fara að sofa á skikkanlegum tíma en ekki kl 23, fær ekki lengur smákökur í hádegismat  og engar gjafir á hverjum degi frá jólasveininum. Jólin hafa liðið mjög hratt í ár, þau gengu rólega fyrir sig í ár þrátt fyrir jólaboð á hverjum degi þá var nógur tími til að sofa út, lesa og slappa af í náttfötunum heima. Það var nefnilega eitt af markmiðunum í ár. Svo er alvara lífsins tekin við og ég er að vinna langa helgi núna um helgina. Löng helgi þýðir vakt frá kl. 16 á laugardegi til kl 16 á mánudegi. Getur verið strembið ef það er mikið að gera. En svo er aftur 2 daga frí um áramótin 30 og 31 des og þá getur maður hlaðið batteríin á ný. Við fjölskyldan á Hringbraut fengum fullt af góðum gjöfum. Ég fékk sitt lítið að hverju, eitthvað fyrir mig bæði skartgripi, geisladiska, bók og snyrtivörur og eitthvað fyrir heimilið. Þannig að mín er vel sátt. Jólaknús til allra
»
24.12.2008 08:27:09 / haffah
Við fjölskyldan skruppum í Heiðmörk s.l. helgi og fundum þetta fína jólatré og söguðum það sjálf. Víkingi fannst þetta svaka sport en þó aðallega að borða snjóinn en það var nóg af honum. Apðstæðurnar hefðu ekki getað verið betri, núyfallinn snjór og logn, mjög fallegt. Við munum pottþétt gera þetta á næsta ári. Annars er allt a´gætt að frétta. ÞAð hefur verið nóg að gera s.l. daga, en ég get nú ekki sagt að það hafi verið jólastress í gangi. Ég er löngu búin að kaupa jólagjafirnar. En svo þurfti ég að kaupa eina gjöf í viðbót af því að ég var svo óheppinn að klippa í eina gjöfina þegar ég var að pakka henni inn. Þetta gerist bara fyrir mig. Þannig að ég þurfti að fara í kringluna á Þorláksmessu og bíða í biðröð, en það reddaðist allt. Svo er ég búin að vera að vinna, er t.d. að vinna í dag til kl. 16. Svo verður farið til mömmu og pabba í mat. Lúksus að fá svona þjónustu. Svo er mín rosalega hamingjusöm þessa daga, ég var að fá einkunn úr tölfræðinámskeiðinu og það gekk mjög vel. Ein að springa úr monti. Gleðileg jól ölll sömul.
»
16.12.2008 18:04:17 / haffah
Eins og áður hefur komið fram, skelltum við okkur litla familían til Akureyrar um helgina. Þetta var rosalega kósí ferð. Við fórum á skíði og snjóbretti og Víkingur prófaði skíða í fyrsta skipti. Hann var alveg að fíla þetta vildi frekar skíða heldur en vera á sleða. Það var mjög gott veður sól og logn en það var nístingskuldi frostið náði upp í mínus 9 gráður. Þótt við reyndum að vera stutt í einu og hlýja okkur inn á milli tókst Víkingi að krækja sér í flensu og við mæðginin erum búin að vera hérna heima í 2 daga. Hann er allur að koma til, hitinn er farinn og hann fer á leikskólann á morgun. Við erum búin að hafa það kósí og dúlla okkur saman og hluta á jólatónlist og ég er búin að þrífa allt hátt og lágt meira að segja ísskápinn. Enda brýn þörf á því það var nú aldeilis farið að lykta þar inni  Annars er nóg að gera fyrir jól, maður er að reyna að hafa sem minnst prógram en þetta æxlast nú einhvern veginn þannig, það eru alltaf einhver boð og svoleiðis. En það er bara gaman. Það er allavega enginn að deyja úr jólastressi á þessu heimili, búið að kaupa allar gjafir fyrir löngu. Það koma fljótlega nýjar myndir inn á barnland, þannig að endilega fylgist með.
»
11.12.2008 14:26:10 / haffah
Við litla fjölskyldan ætlum að skella okkur norður um helgina. Erum búin að leigja okkur litla íbúð á vegum hjúkrunarfélagsins og verðum þarna í góðu yfirlæti. Ætlum að skella okkur á skíði og hafa það huggulegt. Við fórum líka í fyrra í svona helgarferð rétt fyrir jól, þetta er alveg nauðsynlegt. Við fengum frí á morgun og ætlum að leggja af stað fyrir hádegi. Það er spáð óveðri í nótt þannig að það var hætt við að fara í kvöld, en vonandi lægir svo við komumst norður. Annars er mest lítið að frétta fyrir utan að það er nóg að gera. ég týndi dagbókinni og mér finnst ég alveg lost, ég er svo vön að skrifa allt sem er á döfinni í hana. Það er í nógu að snúast, ekki það að ég sé í einhverju jólastressi heldur er svo margt sem ég er búin að fresta á meðan ég var í prófundirbúningi. En maður ætti að ná þessu öllu.
»
06.12.2008 09:24:34 / haffah
Jæja þá er mín búin í prófinu. Ég er ekki ánægð með frammistöðuna. Prófið var of langt þannig að ég náði ekki að klára það. Og við lentum allar í þessu. Svo eyddi ég allt of löngum tíma í það sem ég kunni síður og það bitnaði á því sem ég kunni vel og þurfti ég því að skilja margt eftir sem ég vissi að ég hefði getað svarað. En svona er þetta maður getur ekki verið að svekkja sig yfir þessu. Þetta er búið og gert, maður vonar bara að maður nái 6 en það er lágmarkseinkunn sem þarf að ná til að verkefnin verði metin inn. En það hefur gengið vel með verkefnin í vetur. Ég er allavega mjög fegin að þetta er búið. Er byrjuð að vinna og komin á helgarvakt. Svo er bjrálað prógram næstu vikur, alltaf eitthvað um að vera, svona er þetta þegar maður frestar lífinu þangað til eftir próf. En þetta eru bara skemmtilegir hlutir eins og fjölskylduboð og vinkonuhittingar. Svo förum við til Akureyrar um næstu helgi á skíði. Knús Haffa
»
02.12.2008 09:13:37 / haffah
Uhm uppáhaldskaffið mitt er komið í verslanirnar, Grýlukanill. Það er svona jólakaffi með kanil/karamellubragði algjört nammi. Ég man þegar ég smakkaði það í fyrsta skipti heima hjá Helgu vinkonu, þá hélt ég að hún hefði laumað balys í glasið mitt. Það kemur svo gott eftirbragð. En vá hvað allt er orðið dýrt, pakkinn hefur alltaf kostað í kringum 400 kr. en er kominn í yfir 600 krónur notabene lítill pakki 250 g. En ég lét mig hafa það í þetta skipti. En næst er ég að spá í að kaupa venjulegt kaffi og setja bara kanil sjálf út í, það er líka mjög gott ég hef prófað það. En svona er nú að búa á Fróni núna, allt brjálæðislega dýrt, en maður nennir ekki að velta sér of mikið upp úr þessu. Annars gengur vel í próflestri, ég var að klára ritgerðina áðan jibbý og þá er bara prófið eftir. Best að drífa sig að fá sér grýlukaffi og lesa. Jólaknús Hafdís
»
01.12.2008 09:33:50 / haffah
Það er komin aðventa, ótrúlegt en satt. Meðan ég sit hérna og læri þá verð ég að viðurkenna það að ég sakna vinnunnar minnar. Það er ótrúlega einmannalegt að sitja í 2 vikur allan daginn fyrir framan tölvuna eða bækurnar. Nú fæ ég enn og aftur staðfest hvað ég myndi ekki geta unnið fyrir framan tölvu og pappíra alla daga alveg eins og það er fullt af fólki sem gæti ekki hugsað sér að vinna við það sem ég vinn við. Það er gott að við séum ekki öll eins. Ég hef öurgglega skrifað þetta áður, en að hjálpa svona mikið veiku fólki og aðstandendum þeirra er mjög þakklátt starf. Mér og öðrum sem vinna við þetta er þakkað á hverjum degi fyrir framlag okkar. Við Siggi vorum að ræða þetta um daginn og ég var að tala um hvað starf mitt er oft erfitt og hann sagði við mig hvað ég væri heppin að mér væri allavega þakkað fyrir það sem ég gerði. Oft er hann kallaður öllum illum nöfnum, hann tekur þessu ekki persónulega heldur er hann bara hluti af stóru batteríi og ef eitthvað fer úrskeiðis þá fær sá sem er á staðnum að heyra það. Í verkfræðigeiranum snýst allt um að klára eitthvað fyrir ákveðinn tíma en ef eitthvað er gert vel eða fyrir ákveðinn tíma þá er það mjög sjaldan sem fólki er þakkað fyrir vel unnin störf. Ég hugsa allavega ekki að ég myndi meika að vera kölluð öllum illum nöfnum í vinnunni  En svona erum við misjöfn. Svona smá pælingar.
»
26.11.2008 21:36:23 / haffah
Ég tók mér tveggja vikna frí frá vinnu til að læra fyrir próf. Ég er að vísu bara að fara í 1 próf en þarf líka að skila ritgerð þannig að þetta frí var algjör nauðsyn byggt frá fyrri reynslu. Maður er alltaf að reyna að vera ofurkona og gera allt í einu en það bitnar bara á manni sjálfum. Mér finnst rosalega gott að geta bara leyft mér að dúllast með Víking frá því hann er búinn í leikskólanum og þangað til hann fer að sofa. Annars er svosem ekkert að frétta, ég sit bara hérna heima á daginn og er að læra undir tölfræðipróf, frekar mikið torf. Ég er allavega rosalega fegin að prófið sé þetta snemma, það er 4 des og þá á maður jólamánuðinn í frí. Frekar næs. Ég man að í fyrra kláraði ég skólann 22 des. Ég tók þá ákvörðun í ár að vinna um áramótin frekar en jóladagana. Ég er avísu að vinna á þorláksmessu og aðfangadag en er svo í fríi alla hátíðisdagana og vinn svo 1 jan frá kl. 8. Frekar næs jól í ár. Ég er ekki komin í mikið jólaskap, er ekki ennþá búin að setja upp jólaseríurnar. Maður gerir það kannski um helgina. Aðventukertastjakinn þarf allavega að fara upp úr kassa um helgina.
»
19.11.2008 18:30:33 / haffah
Það er nóg að gera hjá skvísunni og enginn tími að setjast niður fyrir framan tölvuna og gera eitthvað annað en vinnu eða skólatengt. Það er frekar fyndið að það virðist allt gerast á sama tíma, eins og ég hef áður neft þá eru 2 próf og 2 verkefni í nóvember og desember. Ég er búin með annað prófið og annað verkefnið, en fyrir utan það þá skráðum við siggi okkur á foreldranámskeið og svo er núna að fara verkefni í gang vegna vinnunnar og ég stjórna því fyrir mína deild. Þetta verkefni er búið að vera í uppsiglingu í ár en það er að fara af stað akkúrat núna þegar ég hef engan tíma. En ég verð að láta það bíða, og byrja á því eftir próf. Þegar allt gerist á sama tíma er ég vön að setja sjálfa mig í mikla pressu. En ég get ekki gert allt í einu og því verður maður að skipuleggja sig vel og velja og hafna því sem er mikilvægt. Þa er heldur ekki gott að fresta öllu þangað til eftir próf, því þá er kominn desember og mig langar að hafa doldið huggó þá. En maður finnur alltaf lausn á þessu. Nú langar mig að koma með jákvæðar fréttir. Það er alltaf verið að tala um það neikvæða, það nýjasta neikvæða er að það eigi að draga saman í heilbrigðiskerfinu og mín getur nú ekki skilið hvernig það eigi að draga enn meira saman. En það er alltaf til ljós punktur á þessum síðustu og verstu tímum. Ég vil hrósa starfsmannafélagi Landspítalans fyrir vel unnin störf því að í dag skrifuðu þau undir samning við ýmis fyrirtæki sem munu gefa starfsmönnum stofnunarinnar ýmis fríðindi. Bjössi í World Class ætlar að gefa starfsmönnum frían árssamning með því skilyrði að maður mæta a.m.k. x1 í viku. Ef það klikkar fyrir eina viku þá þarf maður að greiða venjulegt mánaðargjald, þannig að maður hefur engu að tapa. Svo fáum við afslátt á tryggingum, bensíni og símreikningi hjá útvöldum fyrirtækjum. Mjög gott framtak hjá starfsmannafélaginu. Það mun allavega muna miklu fyrir þetta heimili ef ég fæ frítt í ræktina. Ég hugsa alveg að ég geti mætt a.m.k. x1 í viku ef ég fæ gjaldið frítt í staðinn. Þetta verður þá bara mikil hvatning.
»
09.11.2008 22:22:14 / haffah
Tíminn líður svo hratt að maður nær ekki að fylgjast með. Á miðnætti verður Víkingur minnn 3ja ára. Að hugsa sér að það séu heil 3 ár síðan hann fæddist, mér finnst eins og það hafi verið í gær. Mikið hefur gerst á þessum 3 árum og mér finnst ég svo rík og heppin að fá að fylgjast með þessum stórkostlega persónuleika. Það hefur verið mikil tilhlökkun í gangi vegna afmælisins. Það var ætlunin að halda stóra veislu í dag og ég var búin að bjóða 33 manns í tveimur hollum. Fyrst vinir okkar og börn þeirra auk tveggja vina úr leikskólanum. Og svo fjölskyldan, þ.e. afarnir og ömmurnar, langafarnir og langamma og systkini okkar Sigga. En í gær mældist Víkingur með yfir 39 stiga hita. Hitinn í morgun var lækkandi en ég vildi ekki taka sénsinn og bjóða fullu húsi af börnum ef hitinn myndi hækka aftur þannig að fjölskyldan kom bara og barnaafmælið verður haldið á föstudaginn í staðinn. Svona geta hlutirnir stundum breyst og okkur finnst þetta frekar mikil tilviljun þar sem það hefur alltaf verið eitthvað veikindastand í tengslum við þessi þrjú afmæli sem við höfum haldið á hans stuttu ævi. en þetta er nú pestatíminn þannig að kannski er þetta engin tilviljun.
»
03.11.2008 18:06:18 / haffah
Dublin var frábær, æðislegt að hanga bara í búðum, fara út að borða og skemmta sér með vinkonunum. Það er alltaf svo mikið að gera hjá manni að maður gleymir stundum að rækta vinina og það var mjög fínt að taka svona törn í nokkra daga. Við skemmtum okkur allavega mjög vel og það var sko ekki mikið verið að hugsa um kreppu eða efnahagsvandamál. Við versluðum slatta og keyptum líka fullt af jólagjöfum. Við fórum líka á fótboltaleik. Sáum fyrri leik Íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta á móti Írlandi. Við vorum með íslenska hatta og skárum okkur mjög mikið úr enda ekki margir íslendingar á vellinum. Við verðum pottþétt að gera þetta aftur eftir nokkur ár. Annars er mest lítið að gera, það verður allavega nóg að gera hjá mér í nóvember, ég á að skila 1 verkefni, 1 ritgerð og fara í tölvupróf innan næstu 2ja vikna, fyrir utan að mæta í vinnuna, skólann og allt annað sem ég þarf að gera. Svo fer ég í skriflegt próf í tölfræðinni 4 des og þá er ég búin fyrir jól, ekkert smá fegin að vera búin svona snemma. Þannig að ég er alveg til í að leggja á mig mánaðartörn og vera í fríi í desember.
»
Síður: 1 2 3 ... 27
|