Kaffiást
Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan
26.11.2008 21:36:23 / haffah

Lærdómur

Ég tók mér tveggja vikna frí frá vinnu til að læra fyrir próf. Ég er að vísu bara að fara í 1 próf en þarf líka að skila ritgerð þannig að þetta frí var algjör nauðsyn byggt frá fyrri reynslu. Maður er alltaf að reyna að vera ofurkona og gera allt í einu en það bitnar bara á manni sjálfum. Mér finnst rosalega gott að geta bara leyft mér að dúllast með Víking frá því hann er búinn í leikskólanum og þangað til hann fer að sofa. 
Annars er svosem ekkert að frétta, ég sit bara hérna heima á daginn og er að læra undir tölfræðipróf, frekar mikið torf. 
Ég er allavega rosalega fegin að prófið sé þetta snemma, það er 4 des og þá á maður jólamánuðinn í frí. Frekar næs. Ég man að í fyrra kláraði ég skólann 22 des. 
Ég tók þá ákvörðun í ár að vinna um áramótin frekar en jóladagana. Ég er avísu að vinna á þorláksmessu og aðfangadag en er svo í fríi alla hátíðisdagana og vinn svo 1 jan frá kl. 8. Frekar næs jól í ár.
Ég er ekki komin í mikið jólaskap, er ekki ennþá búin að setja upp jólaseríurnar. Maður gerir það kannski um helgina. Aðventukertastjakinn þarf allavega að fara upp úr kassa um helgina. 

 
Heiðrún skrifaði
Ertu búin að finna aðventukransinn???? Til hamingju með að vera búin snemma í skólanum. ég verð ekki búin fyrr en 17 des en fæ þá mánaðarfrí, það verður skrítið að vera í svona löngu fríi í janúar :)
haffah skrifaði
Já ég fann hann í gær. Áðventustjakinn minn er svona einfaldur gullhúðaður stjaki frá Georg Jensen og sonur minn tekur kertin úr honum og notar hann sem geimflaug :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 38844
Leitarbox