Kaffiást
Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan
01.12.2008 09:33:50 / haffah

Komin í smá jólaskap :)

Það er komin aðventa, ótrúlegt en satt.
Meðan ég sit hérna og læri þá verð ég að viðurkenna það að ég sakna vinnunnar minnar. Það er ótrúlega einmannalegt að sitja í 2 vikur allan daginn fyrir framan tölvuna eða bækurnar. Nú fæ ég enn og aftur staðfest hvað ég myndi ekki geta unnið fyrir framan tölvu og pappíra alla daga alveg eins og það er fullt af fólki sem gæti ekki hugsað sér að vinna við það sem ég vinn við. Það er gott að við séum ekki öll eins. Ég hef öurgglega skrifað þetta áður, en að hjálpa svona mikið veiku fólki og aðstandendum þeirra er mjög þakklátt starf. Mér og öðrum sem vinna við þetta er þakkað á hverjum degi fyrir framlag okkar. Við Siggi vorum að ræða þetta um daginn og ég var að tala um hvað starf mitt er oft erfitt og hann sagði við mig hvað ég væri heppin að mér væri allavega þakkað fyrir það sem ég gerði. Oft er hann kallaður öllum illum nöfnum, hann tekur þessu ekki persónulega heldur er hann bara hluti af stóru batteríi og ef eitthvað fer úrskeiðis þá fær sá sem er á staðnum að heyra það. Í verkfræðigeiranum snýst allt um að klára eitthvað fyrir ákveðinn tíma en ef eitthvað er gert vel eða fyrir ákveðinn tíma þá er það mjög sjaldan sem fólki er þakkað fyrir vel unnin störf. Ég hugsa allavega ekki að ég myndi meika að vera kölluð öllum illum nöfnum í vinnunni :) En svona erum við misjöfn. Svona smá pælingar.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 38849
Leitarbox