Kaffiást
Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan
28.12.2008 09:04:11 / haffah

Jólin eru ekki búin.... :(

Þetta sagði sonur minn hálf kjörkrandi að kvöldi 26 des. Sá var sko ekki sáttur þegar hann fékk þá útskýringu að jólasveinarnir væru hættir að gefa í skóinn og á leiðinni heim til fjalla. Þetta fannst honum alveg glatað. Og það er ekki nema von að hann kvarti yfir að jólin séu að verða búin. Þá þarf maður allt í einu að fara að sofa á skikkanlegum tíma en ekki kl 23, fær ekki lengur smákökur í hádegismat ;) og engar gjafir á hverjum degi frá jólasveininum. Jólin hafa liðið mjög hratt í ár, þau gengu rólega fyrir sig í ár þrátt fyrir jólaboð á hverjum degi þá var nógur tími til að sofa út, lesa og slappa af í náttfötunum heima. Það var nefnilega eitt af markmiðunum í ár. Svo er alvara lífsins tekin við og ég er að vinna langa helgi núna um helgina. Löng helgi þýðir vakt frá kl. 16 á laugardegi til kl 16 á mánudegi. Getur verið strembið ef það er mikið að gera. En svo er aftur 2 daga frí um áramótin 30 og 31 des og þá getur maður hlaðið batteríin á ný.
Við fjölskyldan á Hringbraut fengum fullt af góðum gjöfum. Ég fékk sitt lítið að hverju, eitthvað fyrir mig bæði skartgripi, geisladiska, bók og snyrtivörur og eitthvað fyrir heimilið. Þannig að mín er vel sátt.
Jólaknús til allra :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  10  Alls: 38837
Leitarbox