13.02.2009 23:36:04 / haffah
Vetur
Fésbókin er sko aldeilis búin að stela senunni frá blogginu. Ég hef verið í smá bloggpásu en er ekki alveg hætt eins og ég hef oft sagt áður.
Þetta er búið að vera frábært ár enn sem komið er, snjór í Bláfjöllunum síðan um miðjan janúar og við hérna á Hringbrautinni höfum nýtt okkur það. Siggi hefur aðallega verið duglegur, en við höfum tvisvar sinnum farið með Víking upp í fjall á snjósleða þar sem við nenntum ekki að bíða eftir leigu á skíðum. En núna um daginn fengum við gefins skíði fyrir hann, þurfum bara að redda honum skóm þá er drengurinn tilbúinn í skíðabrekkurnar. Ég er orðin nokkuð sleip á snjóbrettinu enda tími til komin, það eru heil 4 ár síðan ég prófaði svona fyrst. Ég get nú ekki sagt að ég sé neinn snillingur, en ég kemst niður brekkuna á mínum varkára stíl án þess að detta á meðan "unga og óhrædda fólkið" þeysist fram úr mér. En ég er bara sátt við þetta. Mér finnst þetta allavega mjög gaman. Við erum allavega ekkert að fara á skíði um helgina. Erum öll 3 búin að vera heima með flensuna alla vikuna, ég og Víkingur erum að ná okkur en Siggi er enn með hita, þetta er nú meiri flensan og við Siggi vorum meira að segja búin að fá okkur flensusprautu í haust. Það er greinilega ekkert öruggt í þessum efnum.
Svo verð ég grasekkja næstu vikurnar þar sem Siggi er að fara á mánudaginn til Venesúela að vinna. Ég trúi því að vísu ekki fyrr en það gerist hann er búin að vera á leiðinni síðan um miðjan jan en vinnan er alltaf að fresta honum.
Ég lofa tíðari færslum. Knús í bili.