Kaffiást
Dagsetning
21. mars 2010
Klukkan
29.06.2007 20:51:14 / haffah

Snilldar dagur

Smá kveðja úr blíðviðrinu í Reykjavík. Við Víkingur vorum úti í allan dag, fyrst fór ég ein í sund og sólbað í Laugardalinn á meðan Víkingur var í smá stund hjá dagmömmuni. Mælirinn í Laugardalnum sýndi heilar 20 gráður það væri nú ekki í frásögur færandi nema að við búum á þessu blessaða kalda fróni. Svo fórum við ó Nauthólsvíkina og lékum okkur þar, Víkingur elskar að leika sér í sandinum og busla í vatninu þar. Svo enduðum við daginn á Austurvelli og kíktum aðeins á mannlífið þar. Það sem toppaði daginn var að Siggi kom heim frá Karáhnúkum eftir 5 daga törn frá litlu familíunni.

Upphaflega planið var að fara austur fyrir fjall í kvöld í Fljótshlíðina því þar er ættarmót hjá ætt Sigga. En við frestuðum ferðinni þangað til á morgun því við nenntum hreinlega ekki að bíða í bíl í 3 klst, því búist er við þungri umferð í kvöld. Við stefnum að því að leggja af stað snemma á morgun. Það er ´mjög líklegt að margir fái þessa sömu hugmynd en það er allavega minni líkur á brjálaðri umferð á morgun.

Svo verð ég að deila því með ykkur að skvísan hefur ekki bragðað sælgæti og gos í 10 daga, það er nýtt met í 13 ár. Á menntaskólaárunum fór ég í nammibindindi sem stóð í 1 og hálft ár eða þangað til ég fór til Ameríku he he.... Ég er bara orðin leið á nammiátinu í mér. Ég hef verið að standa mig að því að narta í eitthvað nammi á hverjum degi og ég nenni ekki að ver svona óholl. Nú læt ég bara nægja smá köku eða ís við hátíðleg tilefni. Eins og t.d. í dag í sólinni he he.... Alltaf verið að búa til tilefni.

Knús á línuna og eigið góða helgi.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 22:21:26 / haffah

Myndir frá 17. júní.......

......eru komnar inn á barnaland. Það er von á fleiri myndum frá júní á næstu dögum.

Erum búin að hafa það voða gott við mæðginin í sólinni hérna í Reykjavíkinni. Loksins skín sólin í nokkra daga í röð og von er á sólríkum dögum á næstunni og erum við í skýjunum yfir því.

Við Víkingur prófuðum Grafarvogslaugina í dag, hún er mjög fín og barnvæn. Það er svona trúða setlaug með gosbrunni sem Víkingur elskaði að skoða á meðan mamman fékk sér smá sól (með vakandi augu þó :) ) Ég er ekki frá því að við höfu fengið smá lit í gegnum sólarvörn númer 30 enda vorum við 2 tíma í afslöppun í lauginni. Barnið var óvenju rólegt í sundi í dag, mömmunni til mikillar ánægju.

Fórum svo á Austurvöll og héngum þar í kósístemningu.

Þetta voru fréttir dagsins af mægðinunum sem eru ein í kotinu ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 03:36:54 / haffah

Næturdrottningin

Nú er skvísan mætt á næturvaktir á ný eftir heilar tvær vikur í næturvaktafríi. Og ég tek svo helgina með stæl, 4 nv í röð þar af tvær vaktir í heila 12 tíma frá kl. 20 um kvöld til kl. 8. Það er um að gera að sofa nóg á daginn. Í gær laugardag var ég t.d. ein heima þar sem drengirnir mínir voru í Landmannalaugum í útilegu. Mín svaf eins og engill frá kl. 9 um morguninn til kl. 19 um kvöldið, þá var smá tími til að skella sér í sturtu og skella í sig pítsu og svo í vinnu á ný. Ekki mikið líf hjá minni. En svona er þetta, þegar ég tek svona tarnir þá er maður stilltur inn á þetta og lætur þetta ekki pirra sig þrátt fyrir sól og blíðu úti.

Annars allt fínt að frétta, 17 júní var æðislegur vorum úti allan daginn í skrúðgöngu og kaffiboði hjá tengdó. Frábær dagur.

Svo eru bara 2 vikur í sumarfríið mitt get ekki beðið. Siggi er að fara á Kárahnjúka eftir helgi og verður þar meira eða minna í 3 vikur eða fram að sumarfríinu hans. Þetta verður dálítið púsl með pössun á nóttunni en það reddast. Svo fer dagmamman í sumarfrí viku á undan mér þannig að það þarf að redda pössun fyrir þá vikuna. En þetta reddast allt saman.

Knús á línuna

Hafdís í stuði eins og alltaf :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 17:35:30 / haffah

Endalok yndislegrar viku.

Þá er frívikan mín að verða búin. Að vísu er ég líka í fríi um helgina en ég er á bakvakt og þarf því að vera svona stand by ef einhver veikist og ef það er rosa mikið að gera. En það lítur út fyrir að það verði rólegt á 11-E um helgina.

Því miður er Víkingur orðinn veikur, ég var að mæla hann og hann er með 38,3 stiga hita, það er ekki mikill hiti miðað við hin skiptin sem hann hefur orðið veikur. Þá hefur hitinn eiginlega alltaf farið vel yfir 39 gráður. ÉG er að vona að þetta sé tanntökuhiti þar sem hann er líka búinn að vera með niðurgang sem fylgir líka tanntökunum og einnig búinn að vera pirraður á nóttunni. EFfþetta er tanntökuhiti ætti þetta að líða fljótt hjá og vonandi komumst við í bæinn á 17. júní.....

Ég er þvílíkt endurnærð eftir fríið, ég er líka búin að hressa upp á útlitið með því að lita flest allt á líkamanum sem hægt er að lita. Þar að segja hárið er orðið rautt, augabrúnirnar svartar og vel plokkaðar og líkaminn orðinn aðeins brúnni eftir sólina í byrjun vikunnar og brúnkukremið sem ég búin að maka á mig undanfarna daga he he..

ég er ekki bara búin að hressa upp á útlitið heldur líka heimilið, er búin að mála panelinn og gólflistana og næst á dagskrá er að hressa upp á baðherbergið, kaupa nýjan spegil, lakka innréttinguna osfrv. En það verður gert í næstu viku.

Góða helgi öll sömul

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 23:24:12 / haffah

Nóg að gera

Helgin var algjör snilld í bala. Við fórum í útilegu í Húsafell með vinnunni hans Sigga. Mæja, Helgi og Sunna Gló fóru einnig með okkur. Veðrið var yndislegt, að vísu engin sól, en það var algjörlega logn og mjög milt og hlýtt, svona ekta útileguveður. Víkingur fílaði sig í bortn að vera úti allan daginn og fá meira að segja að sofa úti. Það var sko toppurinn, hann vildi að vísu ekki sofa mikið fyrsta síolarhringinn hann var greinilega hræddur um að missa af miklu, enda fullt af krökkum þarna og svaka fjör. En á sunnudeginum var hann alveg búinn á því og svaf næstum allan daginn. Við nýttum þann dag og fórum í bíltúr upp á hálendið á leiðinni heim. Skruppum aðeins upp á Langjökul til að prófa jeppann á jökli. Það var frábær upplifun.

Svo er ég búin að vera í fríi, ég get nú ekki sagt að þetta sé mikið frí fyrir utan að ég þarf ekki að mæta í vinnuna á þessar blessuðu næturvaktir. Það er nefnilega nóg að gera hjá minni þessa dagana.  Í gær fór ég út að borða í hádeginu með Helgu Rut og Önnu Rún og svo spókuðum við Víkingur okkur niðri í bæ. En dagurinn í dag var mjög afkastamikill. Ég byrjaði daginn á því að mála gólflistana og panelinn, svo leit ég út um gluggann og sá hvað það var geðveikt veður, það besta á árinu allavega hingað til. Þannig að mín nennti sko ekki að mála meira í bili og henti frá sér penslunum og fór út á pall að dúlla sér, planta niður sumarblómum osfrv. Svo fór ég í smá göngutúr niður í bæ og sat og spókaði mig í sólinni á Austurvelli, fór á bókasafnið og fékk bók að láni. Mér tókst að fá nokkra brunabletti þrátt fyrir að maka mig í sólarvörn, en það voru greinilega nokkrir staðir sem urðu út undan.

Svo fórum við Víkingur í sund með Mæju og Sunnu Gló og svo heim, það þurfti svo að versla fyrir matinn og við grilluðum út á palli. Mér tókst líka að þvo allan þvottinn og pússa gluggana áður en ég ákvað að fara að sofa..... sem er núna.

Ég er búin að ákveða að dagurinn á morgun verður meiri svona dúllerísdagur, ekki að afkasta of miklu.

Góða nótt


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 07:51:48 / haffah

Fyrir þá sem þyrstir í ævintýri

Þar sem ég get nú ekki státað af að upplifa mörg framandi ævintýri upp á síðkastið þá vil ég benda á ferðasíðu Kristínar frænku minnar (Stínu) en hún er hjúkrunarnemi á öðru ári. Hún ásamt 7 bekkjarsystrum sínum er stödd í Kenýa að vinna við hjálparstörf í fátækrahverfi.

Hreint út sagt ótrúlegt að lesa um það sem þær eru að upplifa. Ég mæli með að þið kíkið á þessa síðu.

http://www.hjukrunikenya.blog.is/

Annars er bara allt ljómandi að frétta af mér, ég er búin með verkefnið jibbý og get núna aðeins slakað á. Ég á bara eina morgunvakt eftir á morgun og er þá komin í 10 daga sumarfrí.... ég get ekki beðið :)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 13:50:35 / haffah

Vel sofin

Síðasta yfirsögn var illa upplögð í þetta sinn er það vel sofin. Það lýsir vel í hvernig ástandi maður er það maður bloggar he he.

Ég var að vakna núna og klukkan er hálf tvö eftir hádegi takk fyrir. Ég var semsagt að vinna 3 næturvaktir í síðustu viku og náði að sofa illa á milli kannski 5 tíma og svo var ég að vinna um helgina og gera ritgerð. Ég ákvað að sofa út í dag og er búin að gera ráðstafanir með Víking. Pabbi hans fór með hann til dagmömmunnar og amma hans ætlar að sækja hann svo ég geti sofið út og klárað þessa ritgerð. Mikið er gott að vera svona úthvíldur og vinna allt þetta svefntap upp, ég er nefnilega að fara aftur á næturvakt í kvöld og ég næ ekki alltaf að sofa áður en ég fer á svona næturvaktatörn.

En sem betur fer eru ekki nema ca. 10 næturvaktir eftir þangað til ég hætti í ágúst. Ég viðurkenni alveg núna að þetta er eiginlega komið nóg, það er ekki hollt að vinna svona mikið á nóttunni.

En ég var ekki bara að vinna og gera rigerð um helgina, við fórum líka í 2 veislur, útskrift og 30 afmæli Bjarna bróðurs og svo skelltum við mamma okkur í leikhús á laugardagskvöldið á leirkritið Dagur Vonar. Það er mjög mikil dramatík, og ég var svo þreytt að ég svaf eftir hlé. En þetta var samt gott leikrit, bara ekki til að fara á þegar maður er þreyttur.

Svo í gær héldum við skötuhjúin upp á reykleysi á veitingastöðum og fórum með Víking á Vega mót í brunch sem við gerum annars ekki vegna mikils reyks þar. Ég er ekkert smá ánægð með þetta framtak að losna við reykinn, þá getur maður farið með Víkinginn á fleiri kaffihús heldur en Kaffitár án þess að þurfa að hafa áhyggjur af reyknum.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  10  Alls: 38837
Leitarbox